Sprettþraut 3SH

Sprettþraut frá Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Mótsstjóri: 3SH

Vegalengdin er stöðluð hálf-ólympísk vegalengd.

Sund 750 m
Hjól 20 km
Hlaup 5 km

Keppt verður í sex aldursflokkum karla og kvenna, og er aldursskiptingin eftirfarandi:

16-19 ára

20-23 ára

24-39 ára

40-49 ára

50-59 ára

60 ára og eldri

Sprettþraut í Ásvallarlaug Hafnarfirði (Þríþraut)

Synt er 750m í Ásvallarlaug. Laugin er 50m löng.

Styrktaraðilar sprettþrautarinnar

 
 

Veitt eru vegleg verðlaun fyrir efstu sætin í karla- og kvennaflokki, og verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.

Einnig eru vegleg útdráttarverðlaun í boði fyrir þáttakendur.

Keppnin er hluti af stigakeppni Þríþrautasambands ÍSÍ og keppt er eftir reglum sambandsins (sjá hér). Allir keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum á vegum 3SH.

Afhending keppnisgagna fer fram að morgni keppnisdags frá kl 7:15 í anddyri Ásvallalaugar Hafnarfirði. Keppendur mæta tímanlega til að nálgast keppnisgögn, koma sér fyrir á skiptisvæði og kynna sér svæðið.

Skiptisvæðið opnar kl 7:15 og hefst þá einnig skoðun á hjálmi og hjóli. Frjálst val á hjólarekka, nema fyrstu 3 í stigakeppni ÞRI hafa frátekinn rekka.

Keppendafundur með keppnisstjórn kl 8:10 í anddyri Ásvallalaugar. Ætlast er til að allir keppendur mæti á fundinn

07:15: Skiptisvæðið opnar.

07:15: Afhending keppnisgagna í anddyri Ásvallalaugar.

08:05: Skiptisvæði lokar.

08:10: Keppendafundur með keppnisstjórn.

08:20: Sundlaugin opnar.

09:00: Keppni ræst.

Train

Share This